Það stefnir í að þetta verði busy vetur hjá mér. Í MA er mest álag í öðrum bekk en það er einmitt sá bekkur sem ég verð í nú í vetur.
Ég ætla í Súlur og reikna með að talsvert af mínum dírmæta tíma fari í það.
Ég er á styrk frá ÍSÍ þannig að það er eins gott fyrir mig að vera duglegur að júdóast í vetur.
Hrísó getur aldrei verið lengi án þess að fá að njóta starfskrafta minna.
Ég og raggi ættlum að þreita frumraun okkar í að miðla reynslu okkar og þekkingu í hinni japönsku list júdó til ungra lærisveina.
Einnig var ég að fá atvinnutilboð nú rétt í þessu en það starf fælist þá í að miðla þekkingu og aðstoða einstakling til að öðlast færni í rökhugsun og vísindalegum vinnubrögðum sem eiga rætur að rekja til Grikklands til forna. (wtf)
Ég ætla að verða virkur í a.m.k. einu félagi í skólanum.
Mar þarf alltaf að vera að hitta þessa vini manns. (pff)
Hver veit nema kallinn kræki sér í kjéllíngu. Það myndi taka frá mér tíma.
Mig langar að skrá mig í sjálfboðaliða starf rauðakrossinns. (ooo en fallegt af mér)
Töluverður tími fer í að fara upp brekkur á vespunni. (runnn runnn)
Þið vitið hvað þeir segja: Time is Money. Ef svo er þá er ég alveg staur. Getur einhver lánað mér þúsundkall. (ha?)
Ef ég er svona upptekinn hvað er ég þá að eiða tímanum í að tuða um það og skrifa eitthvað ómerkilegt blogg.
(hugs hugs)
Ég skipti um skoðun ég hef nógan tíma þetta snýst bara um að skipuleggja sig vel.
Alveg að fara að fá bílpróf. Þá munum við sko rúnta saman inn í nóttina… (Eða ekki)
Nei þetta er ekki Ragnar Reikás (þúst af því ég skipti um skoðun fattaru? Nei kannski ekkert sniðugt) heldur “gamli góði” Bergþór. Sjáumst í skólanum.